Fotbolti.net
12.01.26 - 15:45
Elvar Geir Magnússon

Carrick tekur við Man Utd - Verið að setja saman teymið

Stefnt er á að Carrick stýri æfingu á miðvikudaginn.

Stefnt er á að Carrick stýri æfingu á miðvikudaginn.

Canon

Mynd: EPA

Daily Mail segir að Manchester United muni kynna Michael Carrick sem nýjan bráðabirgðastjóra á næstu tveimur sólarhringum.

Sagt er að verið sé að ganga frá málum og verið að setja saman teymið sem mun starfa með honum út tímabilið. Ólíklegt sé að tilkynning komi í dag.
Enski boltinn - Hver á að endurlífga Man Utd?
TENGT EFNI

Enski boltinn - Hver á að endurlífga Man Utd?

Stefnt sé á að Carrick stýri æfingu á miðvikudaginn þegar leikmenn United snúa aftur eftir tveggja daga hlé.

Manchester United fundaði með Carrick og Ole Gunnar Solskjær en enskir fjölmiðlar segja að Carrick hafi náð að heilla stjórnendur félagsins.

Darren Fletcher, fyrrum liðsfélagi Carrick, hefur stýrt síðustu tveimur leikjum; 2-2 jafnteflinu gegn Burnley og tapinu gegn Brighton í bikarnum.

Carrick vann fimm Englandsmeistaratitla sem leikmaður Manchester United og var um stutt skeið bráðabirgðastjóri áður en Ralf Rangnick tók við. Hann stýrði Middlesbrough en var rekinn þaðan síðasta sumar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+721
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8010
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Newcastle7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Coventry8-87
16Fulham8-36
17Bournemouth7-46
18Tottenham7-46
19Nott. Forest8-46
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.