Fotbolti.net
12.02.26 - 23:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arteta: Eins og í spilavíti

Arteta: Eins og í spilavíti
Canon

Mynd: EPA

Arsenal gerði jafntefli gegn Brentford í úrvalsdeildinni í kvöld og mistókst að ná sex stiga forystu á Man City í titilbaráttunni. Arsenal komst yfir eftir klukkutíma leik en Keane Lewis-Potter jafnaði metin eftir langt innkast.
„Mjög erfitt að koma hingað, við vissum það. Það er mjög erfitt að taka yfir leikinn á löngum köflum því þeir eru svo góðir. Þeir draga þig að hliðarlínunni, þú setur boltann út af í innkast og það er eins í spilavíti. Það getur allt gerst og eitthvað slæmt getur gerst," sagði Mikel Arteta.

Arsenal átti í miklum vandræðum í fyrri háflleik en Martin Ödegaard kom inn á fyrir Eberechi Eze í hálfleik og það breytti miklu.

„Þetta var taktísk skipting. Við þurftum á öðruvísi leikmanni að halda, sérstaklega miðað við hvernig þeir voru að pressa og við byrjuðum mjög, mjög vel í seinni hálfleik."

„Við þurfum að vinna okkar vinnu og koma á alla vellina eins og aðrir. Við verðum að vera upp á okkar besta í hverjum einasta leik og vera með heppnina með okkur í leikjunum til að ná í stigin þrjú í hverri viku," sagði Arteta um titilbaráttuni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.