Fotbolti.net
12.02.26 - 21:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Lewis-Potter bjargaði stigi gegn Arsenal

Noni Madueke skoraði mark Arsenal

Noni Madueke skoraði mark Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Brentford 1 - 1 Arsenal
0-1 Noni Madueke ('61 )
1-1 Keane Lewis-Potter ('71 )
Arsenal gat náð sex stiga forystu á Man City í titilbaráttunni með sigri á Brentford í kvöld.

Fyrri hálfleikurinn var mjög bragðdaufur en Igor Thiago fékk besta tækifæri fyrri hálfleiksins þegar hann átti skalla að marki af stuttu færi en David Raya varði frábærlega frá honum.

Bæði lið fengu góð færi í upphafi seinini hálfleiks en Noni Madueke braut ísinn fyrir Arsenal eftir klukkutíma leik. Piero Hincapie átti fyrirgjöf og Madueke átti góðan skalla og boltinn hafnaði í netinu.

Michael Kayode komst í góða stöðu til að jafna metin stuttu síðar en Gabriel komst fyrir og varði frábærlega með höfðinu.

Brentford náði hins vegar að jafna metin. Kayode tók langt innkast og Sepp van den Berg skallaði boltann til Keane Lewis-Potter og hann skallaði boltann í netið.

Igor Thiago gat innsiglað sigur Brentford undir lok leiksins þegar hann kom sér framhjá Cristhian Mosquera en sá síðarnefndi gerði gríðarlega vel og komst fyrir skotið.

Brentford var sterkari aðilinn í uppbótatímanum en kom boltanum ekki í netið. Gabriel Martinelli hefði getað innsiglað sigur Arsenal þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Arsenal komst í skyndisókn og Martinelli var einn gegn Caoimhin Kelleher en markvörðurinn náði að loka á skotið.

Arsenal er á toppnum með 57 stig, fjórum stigum á undan Man City. Brentford er í 7. sæti með 42 stig, tveimur stigum á eftir Liverpool.
Keane Lewis-Potter

Keane Lewis-Potter

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.