Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
   fim 12. febrúar 2026 14:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tvö félög hafa gert tilboð í Ívar Örn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tvö íslensk félög hafa samkvæmt heimildum Fótbolta.net boðið í Ívar Örn Árnason, fyrirliða KA. Ívar er algjör lykilmaður í liði KA og ljóst að það yrði mikil blóðtaka að missa hann og KA vill ekki selja.

Samkvæmt öðrum heimildum er Breiðablik annað þessara félaga. Breiðablik reyndi að kaupa Ívar fyrir rúmu síðan en KA hafnaði þá háu tilboði í miðvörðinn.

Ívar var á dögunum orðaður við næstefstu deildir á Norðurlöndunum. Samningur hans við KA rennur út eftir komandi tímabil.

Ívar verður þrítugur á þessu ári, hann hefur verið í stóru hltuverki hjá KA síðustu ár og lyfti Mjólkurbikarnum með liðinu 2024. Fyrir tímabilið 2025 tók hann við hlutverki fyrirliða hjá KA.

Hann er örvfættur miðvörður. Breiðablik verið í miðvarðarleit síðustu mánuði eftir að ákveðið var að Damir Muminovic fengi ekki annan samning hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner