Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. maí 2022 18:37
Brynjar Ingi Erluson
Einn besti leikmaður Tottenham ekki með gegn Arsenal - „Við treystum Sanchez"
Antonio Conte
Antonio Conte
Mynd: EPA
Antonio Conte, stjóri Tottenham, segist treysta kólumbíska varnarmanninum Davinson Sanchez fullkomlega til að leysa Cristian Romero í vörn liðsins gegn Arsenal í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 19:45 og fer fram á heimavelli Tottenham en þetta er risastór leikur í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Argentínski miðvörðurinn Romero meiddist í leiknum gegn Liverpool á dögunum og verður því ekki með en hann hefur verið með bestu varnarmönnum deildarinnar á þessari leiktíð.

Sanchez kemur inn fyrir hann en þetta er fyrsti leikur hans í byrjunarliði síðan í febrúar.

„Cristian Romero meiddist á mjöðm í leiknum gegn Liverpool. Við treystum Davinson Sanchez og hann hefur spilað marga leiki fyrir okkur."

„Sanchez hefur kom inn í nokkrum leikjum og fyrir það spilaði hann alla leiki. Við treystum honum og höfum lausnina. Ég er viss um að hann spili frábærlega."

„Við verðum að ná þessum leik rétt. Við verðum að vera betri en Arsenal og ná í þessi þrjú stig. Við vitum að þeir eru með gott lið og hafa bætt sig mikið,"
sagði Conte.
Athugasemdir
banner
banner
banner