City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
   fös 12. júlí 2019 22:47
Mist Rúnarsdóttir
Ray: Þetta var skref til baka
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög svekktur. Við lögðum ekki upp með að verjast svona mikið og vera svona lítið með boltann. Við ætluðum að þétta mikið inná miðjunni en það gekk ekki og þær yfirspiluðu okkur bara,“ sagði Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur eftir 4-0 tap gegn Haukum í kvöld.

Lestu um leikinn: Haukar 4 -  0 Grindavík

Grindavíkurliðið átti ágæta kafla í fyrri hálfleik en sá ekki til sólar í þeim síðari.

„Það var stígandi í miðjum fyrri hálfleik en seinni hálfleikur var alls ekki nógu góður,“ sagði Ray.

„Markmiðið er alltaf að reyna að halda hreinu en við fáum fjögur mörk á okkur gegn Tindastól og svo aftur fjögur á okkur núna. Við þurfum bara að stíga skrefið til baka og byrja á varnarvinnunni. Það er ekkert annað sem að við getum gert í þessu.“

„Markmiðið er fyrst og fremst að búa til gott lið. Þetta var aðeins skref til baka en ég hef fulla trú á að við munum koma sterkar til baka í seinni hlutanum.“


Nánar er rætt við Ray í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner