29.11.26 - 17:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Valur að kaupa Viktor Örn - Endar Kristófer á Hlíðarenda?

Viktor Örn Margeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristófer Ingi Kristinsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Viktor Örn Margeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er útlit fyrir að Viktor Örn Margeirsson og Kristófer Ingi Kristinsson séu á leið til Vals frá Breiðabliki. Það var 433.is sem greindi fyrst frá þessu fyrr í dag.
Viktor Örn er enn á samning hjá Breiðabliki og samkvæmt heimildum Fótbolta.net þarf Valur að punga út þokkalegri upphæð til að festa kaup á honum.

Samningur Kristófers er runninn út hjá Breiðabliki en samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru viðræður um Viktor Örn komnar lengra en Kristófer og stutt í að það klárist.
Jökull Elísabetarson, nýr þjálfari Breiðabliks, vildi ekki missa Viktor en hann var búinn að gera upp hug sinn áður en Jökull var ráðinn.
Halldór Árnason, nýr þjálfari Vals, þekkir vel til beggja leikmanna eftir tímann sinn hjá Breiðabliki. Viktor Örn var Íslandsmeistari með Blikum 2022 og 2024 og Kristófer árið 2024 og þeir fögnuðu bikarmeistaratitli síðasta sumar.
Viktor er 32 ára varnarmaður og er uppalinn hjá Blikum. Hann hefur einnig spilað með HK og ÍA á ferlinum. Kristófer er framherji sem ólst upp hjá Stjörnunni. Hann fór í atvinnumennsku árið 2017 en samdi við Breiðablik árið 2023.

Heimild: 433.is

Kristófer Ingi Kristinsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson