Fotbolti.net
29.11.26 - 18:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Eiður Smári: VAR dómarinn má klæða sig úr Arsenal treyjunni

Eiður Smári: VAR dómarinn má klæða sig úr Arsenal treyjunni
Canon

Mynd: EPA

Það kom upp ótrúlegt atvik í blálokin í 2-2 jafntefli Arsenal gegn Man City.

Josko Gvardiol átti skalla á markið eftir hornspyrnu og boltinn fór í útrétta hönd Viktor Gyökeres á leiðinni á markið en VAR dæmdi ekki vítaspyrnu.
Sérfræðingar á Englandi og hér heima eru eðlilega gapandi hissa yfir þessari ákvörðun.

„Ef við horfum á jöfnunarmark Arsenal og það sem gerist í lokin þá held ég að VAR dómarinn mætti klæða sig úr Arsenal treyjunni áður en þeir taka ákvörðun. Þetta er algjörlega út í hött," sagði Eiður Smári Guðjohnsen á Sýn Sport.

„Ef þetta er ekki víti þá er ég hættur að kunna leikinn."

„Nei, nei. Hendurnar eru ekki í náttúrulegri stöðu. Þetta er ótrúleg ákvörðun," sagði Gary Neville hjá Sky Sports.

„Þetta er skammarleg ákvörðun. Allir munu segja að ég sé á bláu hliðinni eða hvað sem er, en þetta er skömm. Hvenær hopparðu svona? Ef þú tekur þér stöðu og hendurnar á þér eru svona [setur þær á bringuna], þá skil ég það, en að gefa ekki víti á síðustu stundu leiksins er skömm,“ sagði Micah Richards, sérfræðingur á Sky Sports og fyrrum leikmaður Man City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.