Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. ágúst 2022 20:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Unglingar í aðalhlutverki í endurkomu Dortmund
Youssoufa Moukoko
Youssoufa Moukoko
Mynd: Getty Images

Freiburg 1 - 3 Dortmund
1-0 Michael Gregoritsch ('35 )
1-1 Jamie Bynoe-Gittens ('77 )
1-2 Youssoufa Moukoko ('84 )
1-3 Marius Wolf ('88 )

Önnur umferð efstu deildarinnar í Þýskalandi hófst í kvöld með leik Freiburg og Dortmund.


Bæði lið unnu sína leiki í fyrstu umferð en það var Freiburg sem náði forystunni í kvöld. Michael Gregoritsch skoraði með fínum skalla yfir Gregor Kobel í marki Dortmund.

Staðan var 1-0 í hálfleik og allt fram á 77. mínútu en þá skoraði hinn 18 ára gamli Jamie Bynoe-Gittens og jafnaði metin fyrir Dortmund með skoti fyrir utan teiginn, beint á markvörð Freiburg sem náði ekki vali á knettinum og missti hann í netið. Hinn 17 ára gamli Youssoufa Moukoko kom síðan Dortmund yfir stuttu síðar.

Hann lagði einnig upp markið fyrir Bynoe-Gittens.

Marius Wolf gulltryggði síðan 3-1 sigur Dortmund þegar skammt var til leiksloka.


Athugasemdir
banner
banner