Fotbolti.net
12.09.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Subway

England í dag - Arbeloa mætir aftur á Anfield

England í dag - Arbeloa mætir aftur á Anfield
Canon

Mynd: EPA

Það er nóg um að vera í úrvalsdeildinni í dag. Það er hins vegar enginn hádegisleikur en það eru fimm leikir á dagskrá klukkan 14.

Þar má helst nefna leik Liverpool og Fulham. Alvaro Arbeloa, stjóri Fulham, mætir aftur á Anfield en hann spilaði með Liverpool á sínum tíma.

Fulham hefur verið í brasi í upphafi tímabilsins og er án stiga eftir þrjár umferðir. Liverpool hefur unnið tvo leiki í röð í deild og Meistaradeild eftir jafntefli í fyrstu tveimur leikjunum.

Chelsea fær nýliðana og spútnik lið Hull í heimsókn. Aston Villa og Nottingham Forest eigast við, Bournemouth og Brentford og Crystal Palace fær nýliða Ipswich í heimsókn.

Klukkan 16:30 mætast síðan Tottenham og Everton og Sunderland og Arsenal ljúka kvöldinu á Leikvangi Ljóssins klukkan 19.
laugardagur 12. september
14:00 Aston Villa - Nott. Forest
14:00 Bournemouth - Brentford
14:00 Chelsea - Hull City
14:00 Crystal Palace - Ipswich Town
14:00 Liverpool - Fulham
16:30 Tottenham - Everton
19:00 Sunderland - Arsenal

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.