12.09.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sveindís best í sex marka jafntefli

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sveindís Jane Jónsdóttir átti frábæran leik þegar Angel City gerði 3-3 jafntefli gegn Denver Summit í bandarísku NWSL deildinni í nótt.
Angel City var með 1-0 forystu í hálfleik en Denver svaraði með þremur mörkum á 12 mínútna kafla í seinni hálfleik. Stuttu eftir þriðja markið slapp Sveindís í gegn og sendi á Prisca Chilufya sem skoraði á opið markið og minnkaði muninn í 3-2.

Angel City náði síðan í stig með marki úr vítaspyrnu.
Sveindís var besti maður vallarins að mati Flashscore sem gaf henni 8.2 í einkunn. Angel City er í 9. sæti með 33 stig eftir 23 umferðir.