Fotbolti.net
12.10.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Einn daginn langar Kepa að fara aftur til Bilbao

Kepa Arrizabalaga.

Kepa Arrizabalaga.

Canon

Mynd: Getty Images

Kepa Arrizabalaga (25), markverði Chelsea, langar einn daginn að snúa aftur til Athletic Bilbao á Spáni.
Kepa yfirgaf Bilbao í fyrra til þess að ganga í raðir Chelsea fyrir rúmlega 70 milljónir punda. Hann hafði verið í herbúðum Athletic Bilbao frá 10 ára aldri.

„Auðvitað væri ég til í að snúa aftur til Athletic," sagði Kepa við spænska fótboltaþáttinn El Chiringuito.

„Ég veit ekki hvenær eða hvernig, en auðvitað væri ég til í að spila fyrir Athletic. Ég á frábærar minningar þaðan."

Kepa hefur verið að standa sig vel hjá Chelsea og er orðinn aðalmarkvörður hjá spænska landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.