Fotbolti.net
03.09.26 - 15:58
Kári Snorrason

Asencio sýknaður af ákæru um dreifingu á barnaklámi

Asencio sýknaður af ákæru um dreifingu á barnaklámi
Canon

Mynd: EPA

Raul Asencio, varnarmaður Real Madrid, hefur verið sýknaður í réttarhöldum vegna meintrar dreifingar á klámmyndbandi þar sem ólögráða einstaklingur kom við sögu.

Á myndbandinu sem um ræðir voru tvær konur en önnur þeirra var ólögráða á þeim tíma sem myndbandið var tekið upp og flokkast það sem dreifing á barnaklámi.

Konurnar voru 18 og 16 ára og myndbandið tekið upp á Kanaríeyjum 15. júní 2023.
Leikmaður Real Madrid ákærður fyrir dreifingu á kynlífsmyndbandi
TENGT EFNI

Leikmaður Real Madrid ákærður fyrir dreifingu á kynlífsmyndbandi

Asencio var ákærður fyrir tæpu ári síðan en stúlkurnar tvær drógu kærurnar til baka nokkrum mánuðum síðar. Málið var engu að síður tekið fyrir í réttarhöldum þar sem hann var sýknaður.

Asencio spilaði 23 deildarleiki fyrir Real á síðasta tímabili en hann var orðaður burt frá félaginu í sumarglugganum.
Asencio sýknaður af ákæru um dreifingu á barnaklámi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.