banner
   fim 12. nóvember 2020 20:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi kom Íslandi yfir - Hræðileg mistök Gulacsi
Icelandair
Mynd: Getty Images
Ísland er komið 1-0 yfir gegn Ungverjalandi í úrslitaleiknum um sæti á Evrópumótinu næsta sumar.

Textalýsinguna frá leiknum má nálgast hérna.

Það var Gylfi Þór Sigurðsson sem skoraði mark Íslendinga beint úr aukaspyrnu. Peter Gulacsi, markvörður RB Leipzig, átti að gera betur í markinu hjá Ungverjalandi.

„GYLFI HEFUR KOMIÐ ÍSLANDI YFIR ÚR AUKASPYRNU!!! Okkar besti maður! Peter Gulacsi í marki Ungverja átti að verja þetta, skotið beint á hann, en hann er með smjör á hönskunum!!!" skrifaði Örvar Arnarsson í beinni textalýsingu.

Gylfi er núna einu marki frá því að jafna Eið Smára Guðjohnsen og Kolbein Sigþórsson yfir markahæstu leikmenn landsliðsins frá upphafi.

Mark hans má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner