Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. ágúst 2022 16:52
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeild kvenna: Sjöunda jafnteflið í röð hjá Fylki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir 0 - 0 Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F.


Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  0 Fjarðab/Höttur/Leiknir

Fylkir tók á móti sameinuðu liði Austfirðinga í fyrri leik dagsins í Lengjudeild kvenna og var hann í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Staðan var markalaus eftir nokkuð rólegan fyrri hálfleik en það var gríðarlega mikill hasar eftir leikhlé þar sem bæði lið fengu nokkur dauðafæri.

Markverðir beggja liða stóðu uppi sem hetjurnar í þessum leik sem lyktaði með markalausu jafntefli.

Þetta var sjöunda jafnteflið í röð hjá Fylki sem er með þrettán stig eftir fjórtán umferðir. Austfirðingar eru í fimmta sæti með 25 stig og eiga litla sem enga möguleika á því að komast upp í Bestu deildina.


Athugasemdir
banner
banner