Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 13. nóvember 2020 23:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sancho: Áhugi United ekki ástæðan
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho hefur verið talsvert gagnrýndur fyrir frammistöðu sína á þessari leiktíð með Dortmund.

Sancho var mikið orðaður við skipti yfir til Manchester United í sumar en ekkert varð úr þeim. Margir hafa skoðun á frammistöðu Sancho og sumir vilja meina að United sögusagnirnar séu að hafa áhrif.

„Nah, ég held ekki að það sé ástæðan," sagði Sancho við ITV í gær.

„Ég er á því að allir leikmenn taka smá dýfur á sínum ferli og mér finnst ég vera á þeim stað núna. Þetta snýst núna um hvernig ég kem mér til baka og ég er ánægður að vera með stjóra sem hafa trú á mér."

„Ég er bara glaður að fá að byrja með Englandi og alltaf þegar ég spila geri ég mitt besta. Í dag var ég heppinn og skoraði mark sem hjálpaði liðinu,"
sagði Sancho eftir 3-0 sigur á Írlandi í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner