Fotbolti.net
15.09.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Fyrrum markvörður West Ham og QPR látinn

Fyrrum markvörður West Ham og QPR látinn
Canon

Mynd: EPA

Fyrrum úrvalsdeildarfélögin West Ham United og Queens Park Rangers hafa sent fjölskyldu Ludek Miklosko samúðarkveðjur eftir andlát hans.
Miklosko, 64 ára, er látinn eftir um fimm ára baráttu við krabbamein.

Miklosko lék tæpa 400 keppnisleiki á átta árum hjá West Ham frá 1990 til 1998. Hann var í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum sem sungu nafn hans reglulega og snéri hann aftur til félagsins síðar meir sem markmannsþjálfari.

Hann lék 40 landsleiki fyrir Tékkóslóvakíu og spilaði rúma 60 leiki á þremur árum hjá QPR undir lok ferilsins.

Miklosko hætti krabbameinsmeðferð í desember 2024, þremur árum eftir greiningu, og nokkrum dögum síðar mætti hann á London Stadium til að horfa á heimaleik West Ham gegn Liverpool þar sem áhorfendur tóku einstaklega vel á móti honum.

Hann átti mikið af góðum frammistöðum en ein sú eftirminnilegasta var á lokadegi 1994-95 tímabilsins, þegar West Ham mætti Manchester United. Man Utd þurfti sigur til að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn en Miklosko stóð sig frábærlega og hjálpaði Hömrunum að gera 1-1 jafntefli, sem varð til þess að Blackburn Rovers varð Englandsmeistari.

Fyrrum markvörður West Ham og QPR látinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.