Fotbolti.net
15.09.26 - 12:00
Kári Snorrason

Mögulegur landsliðshópur - Einn nýliði og hvernig verður fyllt í skarð Sverris?

Tómas Bent hefur aldrei verið valinn.

Tómas Bent hefur aldrei verið valinn.

Canon

Mynd: Hearts

Eimskip
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari tilkynnir í hádeginu á morgun leikmannahóp Íslands fyrir komandi leiki gegn Eistlandi, Lúxemborg og Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Um er að ræða fjögurra leikja landsliðsglugga sem hefst þegar Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli laugardaginn 26. september. Glugganum lýkur með útileik gegn Eistum í Tallinn þriðjudaginn 6. október.

Ísland lék síðast keppnisleik fyrir tæpu ári, gegn Úkraínu í Póllandi þar sem liðinu mistókst að tryggja sér annað sæti riðilsins í undankeppni heimsmeistaramótsins.

Fótbolti.net tók saman mögulegan 24 manna landsliðshóp fyrir verkefnið. Í sviga fyrir neðan hópinn eru þeir leikmenn sem koma einnig sterklega til greina.

Arnar hefur áður valið 24 leikmenn þótt aðeins 23 megi vera skráðir í leikmannahóp fyrir hvern leik. Ekki er þó útilokað að hann velji allt að 26 leikmenn enda fjórir leikir á dagskrá í glugganum.
Markverðir:
Elías Rafn Ólasson - Midtjylland
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford
Anton Ari Einarsson - Breiðablik

(Rúnar Alex Rúnarsson og Lúkas J. Blöndal Petersson)

Rúnar Alex spilaði þrjá leiki með FCK í upphafi tímabils vegna meiðsla aðalmarkvarðar liðsins og fékk hann lof fyrir frammistöður sínar. Félagið festi þó kaup á öðrum markverði og sneri Rúnar Alex aftur á bekkinn.

Arnar hefur valið nýkrýnda bikarmeistarann Anton Ara Einarsson sem þriðja markvörð í síðustu verkefnum og virðist hann vera ánægður með hann í þeirri stöðu.

Varnarmenn:
Mikael Egill Ellertsson - Genoa
Logi Tómasson - Samsunspor
Daníel Leó Grétarsson - SönderjyskE
Hörður Björgvin Magnússon - Atromitos
Guðlaugur Victor Pálsson - Horsens
Hjörtur Hermannsson - Gautaborg
Alfons Sampsted - Go Ahead Eagles

(Aron Einar Gunnarsson, Valgeir Lunddal, Davíð Kristján Ólafsson, Kolbeinn Birgir Finnsson, Brynjar Ingi Bjarnason, Dagur Dan Þórhallsson, Daníel Freyr Kristjánsson, Nóel Atli Arnórsson, Davíð Helgi Aronsson, Júlíus Mar Júlíusson)

Það er verulegur missir af Sverri Inga Ingasyni sem sleit krossband í sumar og verður frá út árið. Hjörtur Hermannsson hefur fengið fá tækifæri undir Arnari en hann er nú orðinn fastamaður í vörn Gautaborgar og er honum spáð í hópnum.

Breiddin baka til er ekki sú mesta en Arnar hefur verið hrifinn af Aroni Einari sem er þó ekki að yngjast. Spurning hvort að Arnar velji hann og horfi þá í reynsluna. Hann á þó möguleika að veilja yngri leikmenn í vörnina og þetta mögulega rétt verkefni til þess að móta yngri menn enda andstæðingarnir ekki þeir sterkustu.

Miðjumenn og kantmenn:
Hákon Arnar Haraldsson - Lille
Ísak Bergmann Jóhannesson - Köln
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha BSC
Kristall Máni Ingason - Brann
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R.
Andri Fannar Baldurssson - Kasimpasa
Willum Þór Willumsson - Nec Nijmegen
Tómas Bent Magnússon - Hearts

(Júlíus Magnússon, Arnór Sigurðsson, Bjarki Steinn Bjarkason, Kolbeinn Þórðarson, Eggert Aron Guðmundsson, Amin Cosic, Tómas Óli Kristjánsson, Þórir Jóhann Helgason, Ari Sigurpálsson)

Margir sem koma til greina á miðjunni og eitt nýtt andlit sem kemur inn í hópinn frá Fótbolta.net. Tómas Bent hefur verið einn af lykilmönnum Hearts í Skotlandi en hefur hingað til ekki fengið kallið.

Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið í undanförnum hópum og er honum spáð áframhaldandi sæti. Jóhann Berg Guðmundsson er án félags og íhugar að leggja skóna á hilluna, hann er því ekki í hópnum.

Kristian Hlynsson er meiddur og er áætlað að hann komi til baka í byrjun október. Hann er því ekki valinn. Gísli Gotti meiddist illa í byrjun tímabils og víkur hann því úr hópnum.

Framherjar:
Albert Guðmundsson - Lazio
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad
Andri Lucas Guðjohnsen - Blackburn
Brynjólfur Andersen Willumsson - Groningen
Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö

(Viktor Bjarki Daðason, Stefán Ingi Sigurðarson, Benóný Breki Andrésson)

Stóru tíðindin eru eflaust þau að Andri Lucas Guðjohnsen snýr aftur í hópinn eftir að hafa verið að glíma við meiðsli. Bróðir hans, Daníel Tristan, er sömuleiðis í hópnum en hefur verið í furðulegri stöðu hjá félagsliði sínu, Malmö.

Viktor Bjarki skoraði í síðasta leik með FCK og var valinn í fyrsta sinn í hópinn í vor en meiddist í aðdraganda leiksins og gat því ekki spilað. Mjög svo spennandi kostur sem erfitt er að líta framhjá.

Brynjólfur Willumsson hefur farið vel af stað í Hollandi og skorað fjögur mörk í sex leikjum í Eredevise.

Meiddir:
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente (tæpur)
Sævar Atli Magnússon - Brann
Gísli Gottskál Þórðarson - St. Pauli
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos
Arnar opinberar hópinn á morgun.

Arnar opinberar hópinn á morgun.

Canon

Mynd: KSÍ

Gylfa er spáð áframhaldandi sæti í hópnum.

Gylfa er spáð áframhaldandi sæti í hópnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Lucas snýr aftur í hópinn.

Andri Lucas snýr aftur í hópinn.

Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Ólíklegt er að Kristian nái landsleikjunum vegna meiðsla.

Ólíklegt er að Kristian nái landsleikjunum vegna meiðsla.

Canon

Mynd: EPA

Sleit krossband í sumar.

Sleit krossband í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fjögurra leikja gluggi fram undan.

Fjögurra leikja gluggi fram undan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skoraði í síðasta leik FCK.

Skoraði í síðasta leik FCK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hjörtur orðinn fastamaður í vörn Gautaborgar.

Hjörtur orðinn fastamaður í vörn Gautaborgar.

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.