Fotbolti.net
15.09.26 - 10:24
Elvar Geir Magnússon

Fyrrum KA-mennirnir með frábæra samvinnu fyrir Víking

Fyrrum KA-mennirnir með frábæra samvinnu fyrir Víking
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar Víkings eru komnir í seilingarfjarlægð við annan Íslandsmeistaratitil en þeir unnu öruggan 4-1 sigur gegn Keflavík á Víkingsvelli í gær.

Daníel Hafsteinsson, sem átti frábært kvöld skoraði fyrsta mark leiksins eftir frábæra hælsendingu frá Sveini Margeiri Haukssyni. Þeir tveir þekkja hvorn annan út og inn og léku einnig saman hjá KA.

Magnús Atlason, fréttamaður Fótbolta.net, valdi markið sem atvik leiksins.

„Mark Daníels Hafsteinssonar á 21. mínútu. Frábært spil hjá fyrrum liðsfélögum hjá KA sem endaði með flottri afgreiðslu. Flóðgáttir opnuðust í kjölfarið og þrjú mörk voru skoruð á 10 mínútum," skrifaði Magnús.

Markið má sjá hér að neðan og einnig má sjá flott mark Róberts Orra Þorkelssonar úr leiknum; sláin, sláin, inn!
Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 - 1 Keflavík

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.23+4956
2KR23+2947
3Fram22+1445
4Breiðablik22+230
5ÍA23-630
6Keflavík23-828
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.