Fotbolti.net
14.03.26 - 19:03
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið West Ham og Man City: Haaland og Marmoush fremstir - Summerville ekki með

Haaland og Marmoush eru fremstir hjá City

Haaland og Marmoush eru fremstir hjá City

Canon

Mynd: EPA

West Ham United mætir Manchester City í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Ólympíuleikvanginum í Lundúnum klukkan 20:00 í kvöld.
Man City þarf á þremur stigum að halda og talaði Pep Guardiola, stjóri félagsins, um að ef það tækist ekki þá væri liðið úr leik í titilbaráttunni.

Hann stillir upp ógnarsterku liði en Erling Braut Haaland og Omar Marmoush munu leiða framlínuna. Antoine Semenyo er einnig í liðinu og þá er Marc Guehi í hjarta varnarinnar.

Breytingarnar eru þrjár talsins en Matheus Nunes, Marmoush og Rayan Ait-Nouri taka stöður þeirra Ruben Dias, Jeremy Doku og Savinho. Abdukodir Khusanov kemur í miðvörðinn á meðan Nunes verður í bakverði.

Man City-menn eru stálheppnir að Hamrarnir séu án eins mikilvægasta leikmannsins, Crysenscio Summerville, sem hefur verið sjóðandi heitur síðustu vikur. Hann er frá vegna meiðsla en hann dettur út ásamt Callum Wilson sem fer á bekkinn.

Pablo og Kostas Mavropanos koma inn í liðið og útlit fyrir að West Ham sé að fara spila fimm manna vörn.

West Ham: Hermansen; Wan-Bissaka, Disasi, Mavropanos, Todibo, Diouf; Hernandes, Soucek; Pablo, Castellanos, Bowen

Man City: Donnarumma; Nunes, Khusanov, Guehi, Ait-Nouri; Semenyo, Rodri, Bernardo, O'Reilly; Haaland, Marmoush

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.