Hinn 16 ára gamli Max Dowman færði Arsenal nær Englandsmeistaratitlinum með innkomu sinni í 2-0 sigrinum á Everton í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Chelsea tapaði á meðan fyrir Newcastle, 1-0, á Stamford Bridge.
Gestirnir frá Liverpool-borg voru betri aðilinn í fyrri hálfleiknum svona ef heilt er á litið. Dwight McNeil átti tvær góðar tilraunir snemma leiks.
Riccardo Calafiori kom fyrst til bjargar og fór síðan seinna skotið í tréverkið, en nokkrum mínútum síðar kom umdeildasta atvik leiksins er Kai Havertz féll í teignum eftir viðskipti sín við Michael Keane, varnarmann Everton.
Snertingin var til staðar en ekki talin nóg til þess að dæma vítaspyrnu og áfram hélt leikurinn.
Staðan í hálfleik markalaus og komust Everton-menn aftur nálægt því að skora snemma í þeim síðari er Beto náði skoti á markið en David Raya varði vel.
Arsenal fór að sækja meira á Everton-liðið og átti Eberechi Eze tvö mjög góð færi til að skora. Fyrst setti hann boltann rétt framhjá og þá varði Pickford vel í seinna færinu sem kom tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok.
Mikel Arteta var djarfur að setja hinn 16 ára gamla Max Dowman inn á til þess að sækja seint sigurmark og var hann ansi nálægt því á 84. mínútu. Hann hóf sóknina með því að koma boltanum á Piero Hincapie sem setti hann á Gabriel Martinelli. Hann setti boltann fyrir á Eze sem kom honum aftur á Dowman, en skot hans yfir markið.
Everton hafði ekki tapað útileik síðan í desember og er það lið sem hefur verið hvað öflugast á útivelli á tímabilinu en ekki tókst gestunum að standast pressu Arsenal-manna sem náðu inn tveimur mörkum undir lok leiks.
Dowman átti fyrirgjöf á fjærstöngina sem Jordan Pickford virtist vera með, en hann missti af boltanum sem skoppaði af Hincapie og að marklínu þar sem Viktor Gyökeres var réttur maður á réttum stað og skoraði.
Agalegt hjá Pickford sem hafði annars átt ágætis leik í markinu en stuttu síðar gerði Dowman út um leikinn með stórkostlegu marki.
Everton átti hornspyrnu og fór Pickford inn í teiginn í von um að ná inn jöfnunarmarki. Arsenal hreinsaði frá og á Dowman, sem fór framhjá tveimur Everton-mönnum, hljóp upp allan völlinn og lagði boltann í autt netið. Mikið hugrekki hjá Arteta að setja hann inn á þegar Arsenal vantaði mark og var það Dowman sem kom að báðum.
Englandsmeistarabragur á Arsenal sem er að færast nær titlinum.
Arsenal er á toppnum með 70 stig, tíu stigum meira en Manchester City sem mætir West Ham klukkan 20:00. Everton er á meðan í 8. sæti með 43 stig.
Chelsea tapaði fyrir Newcastle
Heims- og Sambandsdeildarmeistarar Chelsea töpuðu fyrir Newcastle United, 1-0, á Stamford Bridge.
Fyrir leik tók Chelsea sinn hefðbundna liðshring á miðjunni, nema í þetta sinn var Paul Tierney, dómari leiksins, í miðju hringsins og kippti sér eitthvað lítið upp við það. Skondið atvik sem á eflaust eftir að breytast í eitthvað mím á næstu dögum.
Anthony Gordon skoraði sigurmark Newcastle-manna á 18. mínútu leiksins. Joe Willock fékk frábæra sendingu inn fyrir, lagði hann til hliðar á Gordon sem skoraði.
Newcastle átti nokkur fín færi í fyrri hálfleiknum og var betri aðilinn, en Chelsea skapaði sér mörg góð færi í þeim síðari.
Joao Pedro og Liam Delap fengu fínustu færi en fóru illa með þau og þá átti Reece James aukaspyrnu sem hafnaði í stönginni undir lok leiks.
Newcastle var mjög vel skipulagt í leiknum og fagnað góðum úrslitum í síðustu leikjum. Liðið hans Eddie Howe að toppa á hárréttum tíma, en erfið vika hjá lærisveinum Liam Rosenior sem er svo gott sem úr leik í Meistaradeildinni og var þetta þá þungt högg í baráttu liðsins um sæti í keppninni á næstu leiktíð.
Newcastle er í 9. sæti með 42 stig en Chelsea í 5. sæti með 48 stig.
Chelsea 0 - 1 Newcastle
0-1 Anthony Gordon ('18 )
Arsenal 2 - 0 Everton
1-0 Viktor Gyokeres ('89 )
2-0 Max Dowman ('90 )
Athugasemdir



