Fotbolti.net
14.03.26 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gunni Birgis spáir í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Gunnar Birgisson með Jasoni Daða Svanþórssyni.

Gunnar Birgisson með Jasoni Daða Svanþórssyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verður líf og fjör í ensku úrvalsdeildinni um helgina eftir að það var spilað í bikarnum um síðustu helgi.

Sjálfur Gunnar Birgisson spáir í leikina að þessu sinni.
Sunderland 2 - 1 Brighton (15:00 í dag)
Sunderland á heimavelli er allt önnur skepna.

Burnley 0 - 2 Bournemouth (15:00 í dag)
Ef Hannibal Mejbri fær ekki tíma á boltann þá vinnur Bournemouth þennan leik.

Chelsea 2 - 2 Newcastle (17:30 í dag)
Þetta er spennandi leikur, hér verður algjör markasúpa.

Arsenal 2 - 0 Everton (17:30 í dag)
Fagurfræðin í hávegum höfð á eftirmiðdegi í London. Saka með tvö.

West Ham 1 - 3 Man City (20:00 í kvöld)
Hamrarnir á laugardagskvöldi er heillandi pæling en mér finnst Man City vera gott lið, umdeild skoðun en ég stend og fell með henni.

Man Utd 3 - 1 Aston Villa (14:00 á morgun)
Komum gæjanum í klippingu!! Ég held líka með Villa útaf Villa félaga mínum sem heldur úti hlaðvarpinu Steve Dagskrá. Þeir tapa þessum en ég vona að þeim gangi vel bara í næstu leikjum.

Crystal Palace 1 - 1 Leeds (14:00 á morgun)
Það verða töfrar í þessum leik, Strand Larsen og Búlgarinn geðugi Gruev með mörkin.

Nottingham Forest 3 - 1 Fulham (14:00 á morgun)
Svosem ekkert meira um það að segja. City Ground er magískur staður og þessi leikur verður skemmtun.

Liverpool 4 - 1 Tottenham (16:30 á morgun)
Er búinn að vera með Jón Smára, Óla P, Viktor Unnar, Litlu Flugvélina og fleiri vini mína í sálargæslu. Þeir falla ekki, en þeir vinna ekki á Anfield.

Brentford 2 - 0 Wolves (20:00 á mánudag)
Pjúrista leikur þessarar umferðar. Ég er kominn í hungurverkfall þar til Hákon Rafn byrjar næsta leik, vonandi verður það staðan á mánudagskvöldið.

Fyrri spámenn:
Páll Sævar (7 réttir)
Elliði Snær Viðarsson (6 réttir)
Hinrik Harðarson (6 réttir)
Arnar Laufdal (6 réttir)
Óskar Borgþórs (6 réttir)
Sævar Atli (6 réttir)
Ísak Bergmann (6 réttir)
Ívar Örn (5 réttir)
Brynjar Atli (5 réttir)
Sandra Erlingsdóttir (5 réttir)
Björn Bragi (5 réttir)
Hjammi (5 réttir)
Martin Hermanns (5 réttir)
Kristján Óli (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ásgeir Frank (4 réttir)
Viktor Bjarki (4 réttir)
Viktor Gísli (4. réttir)
Nablinn (4 réttir)
Helgi Guðjónsson (4 réttir)
Thelma Karen (4 réttir)
Tumi Þorvars (4 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Bolli Már (3 réttir)
Elín Helena (3 réttir)
Siggi Höskulds (3 réttir)
Sérfræðingurinn (2 réttir)
Valgeir Valgeirs (2 réttir)
Óðinn Svan (1 réttur)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í deildinni.
Gunnar spáir því að Saka taki sig til og skori um helgina.

Gunnar spáir því að Saka taki sig til og skori um helgina.

Canon

Mynd: EPA

Villi í Steve Dagskrá hér til vinstri.

Villi í Steve Dagskrá hér til vinstri.

Canon

Mynd: Viaplay

Hákon Rafn Valdimarsson.

Hákon Rafn Valdimarsson.

Canon

Mynd: Brentford

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.