Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lampard: Getur farið eins langt og hann vill
Frank Lampard, stjóri Coventry.
Frank Lampard, stjóri Coventry.
Mynd: EPA
Markvörðurinn Carl Rushworth hefur vakið mikla athygli með Coventry á yfirstandandi tímabili.

Hann er á láni frá Brighton og hefur að margra mati verið besti markvörður Championship-deildarinnar. Einhverjir hafa jafnvel kallað eftir því að hann verði í landsliðshópi Englands á HM í sumar.

Frank Lampard, stjóri Coventry, hefur miklar mætur á Rushworth og segir hann geta farið eins langt og hann vill í fótboltanum.

„Hann er mjög, mjög hæfileikaríkur leikmaður," sagði Lampard um hinn 24 ára gamla Rushworth.

„Hann getur farið eins langt og hann vill í þessum heimi."


Athugasemdir
banner
banner