Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pep: Er þetta í fyrsta sinn sem ég þjálfa í Meistaradeildinni?
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Pep Guardiola var í stuði á fréttamannafundi gærdagsins fyrir leik Manchester City á útivelli gegn West Ham United, sem fer fram í kvöld.

Hann hafði ekki mikla þolinmæði fyrir spurningum fréttamanna og gaf áhugaverð svör þegar hann var spurður út í 3-0 tap gegn Real Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar frá því í miðri viku.

„Er þetta í fyrsta sinn sem ég þjálfa í Meistaradeildinni? Nei, það eru 17 ár sem ég þjálfa í þessari keppni og í hvert skipti sem ég tapa þá 'boomba pew pew pew'," sagði Guardiola til að lýsa skothríðinni sem hann fær á sig frá fjölmiðlum og samfélagsmiðlum þegar lið hans tapar í Meistaradeildinni.

„Þetta er svolítið mikið en þetta er heldur ekkert nýtt, stormurinn líður hjá á einum degi og svo er strax annar leikur gegn West Ham og eftir hann förum við beint í undirbúning fyrir seinni leikinn gegn Real á þriðjudaginn. Þegar þriðjudaginn ber svo að garði þá ber hann að garði. Ég á mikið af aðdáendum og stuðningsmönnum í fjölmiðlum.

„Hvað sem gerist þá er það í lagi. Ég sinni minni vinnu og ég veit alveg sjálfur að ef við vinnum þá er það gott og ef við töpum þá er það slæmt."


Pep var svo spurður út í liðsvalið, hvort hann ætli að hvíla einhverja leikmenn gegn West Ham til að hafa þá spræka fyrir seinni leikinn gegn Real Madrid.

Pep gerði tíu breytingar á byrjunarliði City þegar liðið heimsótti Newcastle United í enska bikarnum um síðustu helgi og skóp frábæran sigur.

„Þið getið sagt það sem þið viljið en það er auðvelt að vera vitrir eftir á. Segjum að ég breyti miklu í byrjunarliðinu, ef við vinnum leikinn þá munuð þið segja að þetta var fullkomin ákvörðun hjá Pep.

„Munið þið hvað gerðist gegn Newcastle? Lásuð þið ummælin sem voru skrifuð á samfélagsmiðlum fyrir leikinn? Auðvitað lásuð þið þau. 'Hvað er Pep að hugsa í bikarnum, þetta er svo mikið virðingarleysi gagnvart keppninni'. Ég skil ekki hvernig fólk getur sagt þetta þegar við höfum komist hversu oft í undanúrslit á síðustu fimm árum? Ekkert lið á Englandi hefur komist jafn oft í undanúrslitin og við, ekkert lið hefur komist jafn oft í undanúrslitin á síðustu 15-20 árum í keppninni og við höfum gert á síðustu 5 árum.

„Af hverju spilar ekki Rodri? Af hverju spilar ekki Bernardo? Af hverju spilar ekki þessi? Af hverju spilar ekki hinn? Af hverju er Erling skilinn eftir heima? Svo unnum við 1-3."

Athugasemdir
banner