Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Telur að næsti aðalmarkvörður Chelsea sé hjá systurfélaginu
Mike Penders.
Mike Penders.
Mynd: EPA
Chelsea er í markvarðarkrísu, það verður að segjast eins og er. Robert Sanchez er ekki nægilega góður og Filip Jörgensen er svo sannarlega ekki nógu góður.

Kaveh Solhekol, fréttamaður Sky Sports, telur að Chelsea muni ekki leita á markaðinn í leit að nýjum markmanni því næsti markmaður liðsins sé á láni hjá systurfélaginu Strasbourg.

„Ég held að næsti markvörður Chelsea verði Mike Penders," segir Solhekol.

Penders er tvítugur Belgi sem var keyptur til Chelsea frá Genk síðasta sumar. Miklar vonir eru bundnar við hann fyrir framtíðina.

„Liam Rosenior hefur unnið með honum og hann á að vera einn besti markvörður Belga. Hann gæti haft svipuð áhrif og Senne Lammens hafði hjá Manchester United."
Athugasemdir
banner
banner