Erfitt að kveðja Selfoss en mjög spennandi að fá sénsinn í Bestu

Mættur til Eyja og klárar tímabilið þar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erfitt að yfigefa Selfoss á miðju tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Langaði bara að koma inn á og byrja að hlaupa og spila

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fékk einfaldlega þau skilaboð um að spreyta mig á vellinum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sesar Örn hefur spilað mjög vel með ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Lucas er á láni hjá ÍBV sem er svo með kauprétt á leikmanninum.

Mynd: ÍBV

ÍBV er í 9. sæti Bestu deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss er í 2. sæti 2. deildar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skoraði sjö mörk fyrir Selfoss í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mættur til Eyja og klárar tímabilið þar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann er næstmarkahæsti leikmaður Selfoss á tímabilinu með sjö mörk í 2. deild. Hann hafði átt gott tímabil með uppeldisfélaginu þegar ÍBV kom kallandi.
Fótbolti.net ræddi við kappann um félagaskiptin.
„Það er bara mjög gott að vera kominn til Eyja, get ekki sagt annað. Það var smá aðdragandi þar sem ég var að vega og meta möguleikana mína en ákvað að lokum að kýla á þetta."
„Það sem heillar mig mest við ÍBV er samheldnin og vegferðin sem liðið er á og auðvitað mjög spennandi að fá sénsinn í Bestu deildinni," segir Aron.
Gaman að ná að jafna en vildu öll stigin
Hann spilaði sinn fyrsta leik með ÍBV og fyrsta leik í Bestu deildinni gegn ríkjandi Íslandsmeisturum í Víkingi síðasta sunnudag.
„Ég verð að segja að ég var eiginlega ekkert stressaður, langaði bara að koma inn á og byrja að hlaupa og spila en við vorum undir mikilli pressu undir lokin frá Víkingi,"
Hvaða skilaboð fékkstu áður en þú fórst inn á? „Fékk einfaldlega þau skilaboð um að spreyta mig á vellinum."
„Auðvitað var rosa gaman að ná inn jöfnunarmarkinu, en tilfinningin eftir leik hjá okkur var að við áttum klárlega möguleika til þess að klára leikinn alveg og taka þrjú stig."
Erfitt að fara á miðju tímabili
Hvernig var að yfirgefa Selfoss?
„Tilfinningin að fara frá Selfossi var mjög skrýtin, fara frá mínu uppeldisfélagi, en við töluðum mikið um þetta og okkur fannst þetta fínn tími núna að taka næstu skref í átt að mínum markmiðum. Þannig já mjög erfitt að yfirgefa Selfoss á miðju tímabili."
Þú talar um að þið töluðuð mikið um þetta, getur þú gefið innsýn inn í við hverja þú ræddir?
„Ég ræddi þetta við alla þjálfarana, ræddi nokkrum sinnum við Heiðar og Óla Stefán, ræddi einnig við Guðjón Bjarna formann og mikið við fjölskylduna."
Segir að Selfoss fari upp og möguleiki á titli
Hvernig hefur tímabilið hjá Selfossi verið?
„Sumarið hefur verið upp og niður hjá Selfossi, við höfum ekkert endilega spilað okkar besta bolta en okkur hefur liðið eins og við ættum fullt inni í frammistöðu; upplifað að okkur hafi gengið illa en síðan í raun er liðið ennþá í öðru sæti deildarinnar og stigin hafa safnast jafnt og þétt."
„Mín spilamennska fannst mér bara fín heilt yfir en nokkrir leikir sem mér finnst ég hefði getað komið með meira að borðinu."
Fer Selfoss upp úr 2. deild, vinnur liðið jafnvel tvennuna aftur?
„Já ég held að Selfoss fari 100% upp, hef fulla trú á leikmönnunum og þjálfarateyminu. Tvennan væri mjög skemmtileg og þurfum við bara að bíða og sjá með hana en undanúrslitaleikurinn lítur mjög spennandi út," segir Aron en Selfoss er komið í undanúrslit Fótbolti.net bikarsins og mætir þar Álftanesi eftir rúman mánuð.
Tvennan væri að vinna 2. deild og bikarkeppnina, en sex stig eru upp í Hauka á toppi 2. deildar.
Velgengni hjá góðum vini
Hjá ÍBV er Sesar Örn Harðarson sem fór til Eyja eftir síðasta tímabil. Sesar er tveimur árum yngri en Aron. Ræddir þú við hann fyrir skiptin?
„Já, ég og Sesar erum góðir vinir og ræddi ég við hann um allskonar varðandi ÍBV og hans tíma hér. Það hjálpar mjög mikið að hafa hann hér, auðveldara að komast inn í hópinn þekkjandi hann og nokkra aðra stráka hér fyrir skiptin. Það sem Sesar hefur hjálpað mér með er að aðlagast skiptunum hratt og vel."
Ertu fluttur til Eyja?
„Ég er fluttur til Eyja já, allavega út tímabilið."
Líður best þegar hann fær að hlaupa í kringum framherja
Hvernig leikmaður ertu?
„Ég veit ekki alveg hundrað prósent hvernig ég ætti að lýsa mér, finnst bara virkilega gaman að spila fótbolta og að hafa boltann, mér líður best þegar við erum með boltann og svo finnst mér ég vera fínn í að taka menn á og skapa stöður inna vellinum."
„Mín besta staða, að mínu mati er sem miðjumaður/sóknarmaður þar sem ég fæ að hlaupa í kringum framherja og fæ að finna svæði."
Hvernig líst þér á endasprettinn í deildinni?
„Mér líst mjög vel á baráttuna sem er framundan í deildinni, og er bara mjög spenntur fyrir þessum leikjum sem eru framundan."
Framhaldið ákveðið eftir tímabilið
Hvernig líst þér á þína framtíð. Vonastu til að skiptin til ÍBV verði til frambúðar?
„Framtíðin er skemmtileg, ég fæ að finna hvernig það er að spila í Bestu deildinni út þetta tímabil og síðan verður bara tekin ákvörðun um framhaldið eftir tímabilið."
„Ég hef ekkert hugsað það lengra, er hérna núna þetta tímabil og vonandi næ ég að hjálpa liðinu að ná sínum markmiðum og sanna mig sem leikmaður sem á heima í deild þeirra bestu. Auðvitað draumur samt að geta spilað áfram í Bestu deildinni," segir Aron að lokum.

Erfitt að yfigefa Selfoss á miðju tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Langaði bara að koma inn á og byrja að hlaupa og spila

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fékk einfaldlega þau skilaboð um að spreyta mig á vellinum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sesar Örn hefur spilað mjög vel með ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Lucas er á láni hjá ÍBV sem er svo með kauprétt á leikmanninum.

Mynd: ÍBV

ÍBV er í 9. sæti Bestu deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss er í 2. sæti 2. deildar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skoraði sjö mörk fyrir Selfoss í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
