Gífurlega hörð fallbarátta
Það er ljóst að KF fer upp í 2. deild ásamt Kórdrengjum. KF tryggði sér sæti sitt í 2. deild með öruggum sigri á Reyni Sandgerði á heimavelli sínum í dag.
Alexander Már Þorláksson fór á kostum, eins og svo oft áður í sumar, og skoraði þrennu. Hann er kominn með 27 mörk í 20 deildarleikjum í sumar!
Kórdrengir vinna 3. deildina. Þeir eru með sex stigum meira en KF þegar ein umferð er eftir. Kórdrengir unnu Sindra í níu marka fótboltaleik í dag.
Í fallbaráttunni þá hélt Augnablik sér á lífi með frábærum 6-0 sigri gegn Einherja. Fyrir lokaumferðina eiga fjögur lið möguleika á því að falla ásamt Skallagrími. Það eru Álftanes (22 stig), Sindri (21 stig), KH (20 stig) og Augnablik (19 stig). Augnablik og KH unnu leiki sína í dag.
Hamingju KF og @athorlaksson
— Thorlakur Arnason (@ThorlakurA) September 14, 2019
27 mörk í 20 leikjum. Næsta mál..
KF 4 - 1 Reynir S.
1-0 Alexander Már Þorláksson ('1)
2-0 Alexander Már Þorláksson (22, víti)
3-0 Alexander Már Þorláksson ('25)
4-0 Ljubomir Delic ('29)
4-1 Markaskorara vantar ('87)
Sindri 3 - 6 Kórdrengir
0-1 Keston George ('8)
0-2 Magnús Þórir Matthíasson ('12, víti)
1-2 Mate Paponja ('14, víti)
2-2 Tómas Leó Ásgeirsson ('26)
2-3 Magnús Þórir Matthíasson ('31)
2-4 Hilmar Þór Hilmarsson ('45)
2-5 Einar Orri Einarsson ('47)
3-5 Robertas Freidgeimas ('73)
3-6 Sjálfsmark ('84)
KV 0 - 1 Höttur/Huginn
0-1 Brynjar Árnason ('55)
KH 2 - 0 Álftanes
1-0 Sjálfsmark ('30)
2-0 Magnús Ólíver Axelsson ('44)
Augnablik 6 - 0 Einherji
1-0 Þorleifur Úlfarsson ('13)
2-0 Þorleifur Úlfarsson ('36)
3-0 Ómar Farooq Ahmed ('44)
4-0 Eiríkur Þorsteinsson Blöndal ('47)
5-0 Ómar Farooq Ahmed ('73)
6-0 Guðmundur Pétursson ('80)
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir