Fotbolti.net
05.10.26 - 16:42
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Líklegt byrjunarlið Íslands - Gylfi kemur inn

Elíza Gígja Ómarsdóttir skrifar frá Tallinn:

VIð spáum því að Gylfi Þór Sigurðsson byrji gegn Eistlandi á morgun

VIð spáum því að Gylfi Þór Sigurðsson byrji gegn Eistlandi á morgun

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip

Ísland leikur gegn Eistlandi í Tallinn annað kvöld klukkan 18:45 á íslenskum tíma í C-deild Þjóðardeildarinnar. Þetta er annar leikur liðsins gegn Eistum í þessum langa glugga og jafnframt sá síðasti. Ísland vann öruggan 3-0 sigur gegn Búlgaríu á Laugardalsvelli um helgina og var það annar 3-0 sigurinn í röð eftir svekkjandi jafntefli í fyrri leiknum gegn Eistum.  

Ísland er á toppi riðilsins og fer langt með að tryggja sér efsta sætið, og þar með sæti í B-deild Þjóðardeildarinnar, með sigri á morgun.

Blaðamannafundur fyrir leikinn fór fram fyrr í dag og staðfesti Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands, að allir leikmenn væru heilir og klárir í leikinn. Óvíst var hvort að Gylfi Þór Sigurðsson gæti tekið þátt vegna meiðsla en hann ferðaðist með liðinu í gær, æfði í dag og er klár í leikinn.

„Það eru allir heilir, allir heilir til að spila. Við fengum þrjá ferska stráka inn núna sem koma með sterka orku inn í hópinn og ég held bara að öll lið séu að díla við það sama. Í svona löngum glugga þá munu óhjákvæmilega einhverjir detta út og ég hef talað um það lengi að við erum að stækka hópinn og hann er orðinn mjög sterkur. Þú sérð bara kalíberinn af leikmönnum sem eru að koma inn núna. Þetta eru allt leikmenn sem eru að spila á góðu getustigi,“ sagði Arnar þegar hann var spurður út í stöðuna á hópnum.  

Við spáum því að Arnar geri fimm breytingar á liðinu frá sigrinum gegn Búlgaríu. 

Eins og hefur komið fram er Gylfi Þór Sigurðsson heill og við spáum því að hann komi inn í byrjunarliðið en hann sýndi heldur betur mikilvægi sitt í Lúxemborg. Andri Fannar Baldursson er þá sennilega maðurinn sem verður að bíta í það súra epli að víkja fyrir Gylfa. 

Mikael Neville Anderson kom inn í byrjunarliðið gegn Búlgaríu og þakkaði traustið með frábærri frammistöðu. Hann hefur fengið mikið lof frá landsliðsþjálfaranum og því spáum við því að hann haldi sæti sínu í liðinu. 

Nafni hans Mikael Egill Ellertsson er í banni í þessum leik eftir að hafa fengið gult spjald gegn Búlgaríu og líklegt að Logi Tómasson sem var veikur í síðasta leik en byrjaði gegn Lúxemborg komi inn í hans stað.

Stefán Teitur Þórðarson og Daníel Leó Grétarsson byrjuðu fyrstu tvo leikina í hjarta varnarinnar og koma líklega inn á kostnað Arons Einars Gunnarssonar og Harðar Björgvins Magnússonar. Stefán fór meiddur af velli gegn Lúxemborg og kom ekki við sögu gegn Búlgaríu en virðist vera heill. 

Arnar talaði um að það hefði verið jákvætt að ná að hvíla Andra Lucas Guðjohnsen í leiknum gegn Búlgaríu en hann spilaði bara seinni hálfleikinn í þeim leik. Hann kemur trúlega aftur inn í liðið og með því skiptum við aftur í 4-4-2 kerfið sem við spiluðum gegn Eistlandi og Lúxemborg. 

Arnór Sigurðsson var tekinn út af í hálfleik á kostnað Andra og spáum við því að örlög hans verði svipuð á morgun og að hann komi úr liðinu fyrir Andra. 


Daníel Leó verður trúlega í hjarta varnarinnar

Daníel Leó verður trúlega í hjarta varnarinnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Logi gat ekki byrjað gegn Búlgaríu vegna veikinda

Logi gat ekki byrjað gegn Búlgaríu vegna veikinda

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Lucas hefur skorað tvö mörk í glugganum

Andri Lucas hefur skorað tvö mörk í glugganum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fékk góða hvíld gegn Búlgaríu eftir að hafa farið meiddur af velli gegn Lúxemborg

Fékk góða hvíld gegn Búlgaríu eftir að hafa farið meiddur af velli gegn Lúxemborg

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.