Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. september 2021 17:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo ekki lengi að opna markareikninginn í Meistaradeildinni
Ronaldo búinn að skora í fyrstu tveimur leikjum sínum fyrir Man Utd árið 2021.
Ronaldo búinn að skora í fyrstu tveimur leikjum sínum fyrir Man Utd árið 2021.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er búinn að skora sitt fyrsta mark fyrir Manchester United í Meistaradeildinni í 12 ár.

Ronaldo gekk aftur til liðs við Man Utd undir lok félagaskiptagluggans, eftir að hafa yfirgefið United árið 2009 til að fara til Real Madrid.

Ronaldo er einn besti fótboltamaður allra tíma. Hann skoraði tvö í endurkomuleiknum í ensku úrvalsdeildinni, í 4-1 sigri gegn Newcastle síðasta laugardag.

Hann er núna búinn að skora í endurkomuleiknum í Meistaradeildinni, hann er búinn að koma Man Utd yfir gegn Young Boys í Sviss. Markið skoraði hann eftir flotta fyrirgjöf Bruno Fernandes.

Ronaldo er markahæsti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar.

Hægt er að sjá markið sem hann var að skora með því að hérna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner