14.09.21 - 19:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Lingard gaf Young Boys sigurinn á silfurfati

Lingard niðurlútur í leikslok.

Mynd: EPA

Lingard niðurlútur í leikslok.

Mynd: EPA
Jesse Lingard átti skelfilega innkomu þegar Manchester United <a href="https://fotbolti.net/news/14-09-2021/meistaradeildin-verdskuldadur-sigur-young-boys-a-man-utd" target="_blank">tapaði fyrir Young Boys í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar</a>.
Jöfnunarmark Young Boys kom á 66. mínútu og sigurmarkið kom í uppbótartímanum eftir skelfileg mistök frá varamanninum Jesse Lingard. Enski landsliðsmaðurinn ætlaði að senda til baka en sendingin var vægast sagt slök; Theoson Siebatcheu komst inn í hana og skoraði.
Hægt er að sjá sigurmarkið í leiknum með því að smella hérna.
Lingard kom inn á sem varamaður á 65. mínútu fyrir Cristiano Ronaldo, markaskorara United. Lingard hafði ekki mikil áhrif á leikinn, jú fyrir utan sigurmark Young Boys.
Lokatölur 2-1 og fyllilega verðskuldaður sigur Young Boys. United byrjar riðlakeppnina ekki vel. Mótherjinn í kvöld átti að vera sá auðveldasti í riðlinum.