Fotbolti.net
14.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Franski boltinn

Giroud setti met gegn Arsenal

Giroud setti met gegn Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Franski framherjinn Olivier Giroud skráði nafn sitt í sögubækurnar þegar hann kom inn á í 3-0 tapi Lille gegn sínum gömlu félögum í Arsenal í Meistaradeildinni í gær.
Giroud, sem er fertugur, kom inn af varamannabekk Lille í síðari hálfleik þegar liðið var þegar lent þremur mörkum undir.

Þegar hann steig inn á völlinn skráði hann nafn sitt í sögubækurnar en hann varð fyrsti Frakkinn til að spila í Meistaradeildinni eftir að hafa náð fertugsaldri.

Þá varð hann aðeins annar leikmaðurinn yfir fertugu til að spila fyrir franskt félag í keppninni. Hinn er ítalska goðsögnin Gianluigi Buffon sem lék með Paris Saint-Germain tímabilið 2018-2019.

Lille og Giroud hafa tapað báðum leikjum sínum í deildarkeppninni og næsta verkefni verður ekki af auðveldara taginu. Liðið heimsækir Bodö/Glimt til Noregs og eins og flestir vita er ekkert gefins þar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.