Fotbolti.net
14.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Milan að framlengja við mikilvægan leikmann

Milan að framlengja við mikilvægan leikmann
Canon

Mynd: EPA

Strahinja Pavlovic, leikmaður AC Milan á Ítalíu, er við það að framlengja samning sinn við félagið til ársins 2031, en Sky á Ítalíu segir frá þessum fregnum.
Pavlovic er 25 ára gamall Serbi sem kom til Milan frá Salzburg fyrir tveimur árum. Hann náði ekki að festa sig í sessi undir stjórn Sergio Conceicao og Rui Fonseca á sínu fyrsta tímabili en lék mikilvægt hlutverk undir Max Allegri á síðustu leiktíð og er nú orðinn lykilmaður hjá Ruben Amorim.

Góð frammistaða Pavlovic hefur nú skilað honum nýjum fimm ára samningi og samkvæmt Sky mun hann þéna þrjár milljónir evra í árslaun.

AC Milan er enn taplaust í ítölsku deildinni á tímabilinu með þrjá sigra og þrjú jafntefli eftir fyrstu sex umferðirnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.