14.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Kane vonsvikinn með Olise: Þetta er algjör synd

Olise fékk glórulaust rautt spjald

Mynd: EPA

Olise fékk glórulaust rautt spjald

Mynd: EPA
Harry Kane, framherji Bayern München, var ósáttur við liðsfélaga sinn Michael Olise sem fékk rautt spjald í 3-3 jafntefli liðsins gegn norska liðinu Viking í Meistaradeildinni í gær.
Olise fékk rautt spjald á mikilvægum tímapunkti í leiknum. Hann fékk fyrst gult spjald fyrir brot og aðeins nokkrum sekúndum síðar það síðara fyrir að kasta boltanum í andlit leikmanns Viking.
Olise var þar með rekinn af velli og kominn í leikbann. Viking nýtti sér liðsmuninn og náði að jafna metin undir lokin.
Harry Kane var ekki sáttur með framkomu Olise og segir að Frakkinn verði að læra af mistökunum.
„Hann verður að taka ábyrgð á þessu og læra af því sem gerðist.“
„Þetta er mikil synd því við eigum mikilvæga leiki fram undan í Meistaradeildinni og hann verður auðvitað svekktur yfir því að missa af þeim. En svona er fótboltinn. Mistök gerast og það er hluti af leiknum,“ sagði Kane.