14.12.19 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tierney frá í þrjá mánuði - Pepe klár gegn City

Kieran Tierney fór úr axlarlið.

Mynd: Getty Images

Kieran Tierney fór úr axlarlið.

Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Kieran Tierney þarf að fara í aðgerð eftir að hann fór úr axlarlið í leik gegn West Ham á mánudag. Hann kemur til með að vera frá í um þrjá mánuði.
Tierney var keyptur til Arsenal frá Celtic síðasta sumar, en hann hefur spilað 11 leiki í öllum keppnum á þessu tímabili.
Arsenal mætir Man City á morgun og missa Granit Xhaka, Hector Bellerin, Dani Ceballos og Rob Holding af leiknum vegna meiðsla.
Þó er Nicolas Pepe kominn aftur á fulla ferð og verður hann klár í slaginn á morgun.
Pepe er dýrasti leikmaður í sögu Arsenal, en hann var keyptur frá Lille fyrir rúmar 70 milljónir punda síðasta sumar. Hann hefur hingað til ekki náð að standa undir verðmiðanum, en hann skoraði þó í síðasta leik gegn West Ham.

Nicolas Pepe.

Mynd: Getty Images