Tómas Óli Kristjánsson byrjaði sinn fyrsta deildarleik með AGF er liðið gerði 1-1 jafntefli við Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Tómas gekk í raðir AGF frá Stjörnunni tæpum tveimur árum og unnið sig hratt upp hjá félaginu.
Hann byrjaði sinn fyrsta leik með aðalliðinu í deildinni í dag eftir að hafa nýtt tækifæri sín af bekknum í síðustu leikjum.
Tómas lék klukkutíma í jafnteflinu gegn Fredericia en AGF er á toppnum með 44 stig, fimm stigum meira en Midtjylland eftir tuttugu leiki.
Alfons Sampsted byrjaði í hægri bakverðinum hjá Go Ahead Eagles sem tapaði fyrir Feyenoord, 1-0.
Eagles léku manni færri frá fimmtándu mínútu og þurfti að verjast meira og minna allan leikinn, en í uppbótartíma fengu Feyenoord-menn vítaspyrnu sem Casper Tengstedt skoraði úr.
Stefán Ingi Sigurðarson kom inn af bekknum hjá Eagles undir lok leiksins.
Svekkjandi úrslit fyrir Íslendingaliðið sem er í 15. sæti með 23 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.
Kristófer Jónsson byrjaði hjá Triestina sem tapaði fyrir Novara, 1-0, í A-riðli C-deildarinnar á Ítalíu. Triestina er á botninum með 4 stig.
Athugasemdir



