Kvennalið Chelsea er deildabikarmeistari árið 2026 eftir að hafa unnið Manchester United, 2-0, í úrslitaleik á Ashton Gate í Bristol í dag.
Leikurinn var mjög opinn í byrjun leiks og færin á báða bóga, en varnarmistök bjuggu til fyrra mark Chelsea-liðsins.
Boltinn kom til Dominique Janssen í vörn Man Utd sem hitti ekki boltann og náði James að stela honum, keyra upp að markinu og þruma honum í netið.
United var hættulegt eftir það og átti meðal annars sláarskot áður en Alyssa Thompson slapp í gegn hinum megin á vellinum en Maya Le Tissier kom til bjargar á ögurstundu.
Meðbyrinn var svolítið með United í byrjun síðari hálfleiks en sá fór út um gluggann stundarfjórðungi fyrir leikslok er Johanna Rytting Kaneryd kom með fyrirgjöf frá hægri á Agnes Beever-Jones sem setti boltann í vinstra hornið.
Vel nýtt hjá Beever-Jones sem tryggði Chelsea deildabikarmeistaratitilinn annað árið í röð og í fjórða sinn í sögu félagsins.
Lítur vel út hjá Chelsea sem er einnig komið í 8-liða úrslit enska bikarsins og Meistaradeildarinnar ásamt því að vera í 3. sæti WSL-deildarinnar.
Athugasemdir



