Glódís Perla Viggósdóttir hafði betur gegn Söndru María Jessen í Íslendingaslag er Þýskalandsmeistarar Bayern München unnu Köln, 3-0, í deildinni.
Báðar byrjuðu leikinn en Glódís var í hjarta varnarinnar hjá Bayern á meðan Sandra var fremst hjá Köln.
Sandra hefur verið iðin við kolann á sinni fyrstu leiktíð með Köln og skorað níu mörk, en hún fann ekki leið framhjá Enu Mahmutovic í dag.
Danska landsliðskonan Pernille Harder skoraði tvö og þá gerði Linda Dallmann eitt fyrir Bæjara sem eru í toppsæti deildarinnar með 55 stig, fjórtán stigum meira en Wolfsburg.
Stefnir í enn einn titilinn hjá Bayern en Köln er í 8. sæti með 25 stig.
Kristján Guðmundsson og stöllur hans í Damaiense náðu í sitt fyrsta stig á þessu ári er liðið gerði 2-2 jafntefli við Racing Power í portúgölsku úrvalsdeildinni.
Fyrir leikinn hafði Damaiense aðeins náð í sex stig og komu þau öll fyrir áramót, en það er vonandi að stigasöfnun liðsins haldi áfram á næstu vikum en liðið er á botninum, þó aðeins fjórum stigum frá öruggu sæti.
Hildur Antonsdóttir byrjaði hjá Madrid CFF sem tapaði fyrir Athletic Bilbao, 4-1, í Liga F á Spáni.
Madrid er í 9. sæti með 30 stig eftir 22 leiki.
Hlín Eiríksdóttir byrjaði hjá Fiorentina sem gerði óvænt 1-1 jafntefli við topplið Roma í Seríu A á Ítalíu. Íris Ómarsdóttir kom inn af bekknum í síðari hálfleiknum.
Fiorentina er í 6. sæti með 25 stig, tólf stigum frá toppliði Roma.
Athugasemdir


