Logi Tómasson var hetja Samsunspor í uppbótartíma í 2-1 sigri á Kayserispor í tyrknesku úrvalsdeildinni í kvöld.
Bakvörðurinn hafði ekki skorað deildarmark fyrir Samsunspor, sem hann samdi við síðasta sumar.
Hann beið með það fyrir sérstakt tilefni og kom það tilefni á annarri mínútu í uppbótartíma í kvöld.
Fyrirgjöfin kom frá hægri og rétt út fyrir teiginn á Loga sem tók boltann á kassann áður en hann skoraði með góðu skoti í hornið og tryggði Samsunspor sigurinn.
Samsunspor er í 7. sæti með 35 stig, fjórtán stigum frá Evrópusæti.
Óttar Magnús Karlsson skoraði annað mark Renate í 2-2 jafntefli gegn Virtus Verona í C-deildinni á Ítalíu. Þetta var áttunda deildarmark Óttars á tímabilinu en Renate er í 6. sæti A-riðils með 53 stig.
Ísak Andri Sigurgeirsson kom inn af bekknum í 1-0 sigri Viborg á Bröndby í meistarariðli dönsku úrvalsdeildarinnar. Viborg er í 4. sæti með 36 stig.
Kolbeinn Þórðarson og félagar hans í Gautaborg eru úr leik í sænska bikarnum eftir að hafa tapað fyrir Sirius, 1-0, eftir framlengdan leik í 8-liða úrslitum keppninnar.
Kolbeinn byrjaði leikinn en fór af velli rétt áður en framlengingin fór af stað.
G?L!
— KONTRA FUTBOL (@kontrafutbolik) March 15, 2026
Samsunspor ???? - ???? Kayserispor
? Logi Tomasson
Logi Tomasson, ????????+????. dakikada att??? golle Samsunspor'u maç?n son anlar?nda öne geçirdi.#SAMvKAY I #SüperLigpic.twitter.com/L1klSTxlh3
Athugasemdir




