Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
banner
   sun 15. mars 2026 14:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Réðust á fjölskyldu leikmanns Everton - „Ofbeldi á sér engan stað í fótbolta"
Mynd: EPA
Vinir Thierno Barry, framherja Everton, lentu í átökum undir lok leiks liðsins gegn Arsenal í gær.

Barry hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna atviksins en hann var ásakaður um að gefa stuðningsmönnum Arsenal miða á leikinn.

„Fólkið var þarna til að styðja mig og hefur elt félögin sem ég hef spilað fyrir í gegnum ferilinn. Sumir voru meira að segja í Everton treyjum merktum mér," skrifaði Barry á Instagram.

„Fólk sem sést í myndböndum eru ekki hluti af fjölskyldunni minni, þau eru ættingjar annars leikmanns í liðinu. Því miður réðust stuðningsmenn að þeim sem töldu að þau væru að fagna marki Arsenal. Öryggisverðir sáu atvikið, vinir mínir voru móðgaðir, hvernig er þetta hægt?"

„Ég vil minna alla á að ofbeldi á sér engan stað í fótbolta, óháð aðstæðum."

Merseyside Lögreglan er að rannsaka tildrög slagsmálanna.


Athugasemdir
banner
banner