Hákon Arnar Haraldsson skoraði sjötta deildarmark sitt með Lille á leiktíðinni er hann kom liðinu í 2-0 gegn Rennes í frönsku deildinni í kvöld.
Skagamaðurinn hljóp upp allan völlinn í markinu sem kom í byrjun síðari hálfleiks.
Rennes átti hornspyrnu sem var hreinsuð frá. Matias Fernandez-Pardo tók á móti boltanum og tók á rás, en hann hljóp upp hægri vænginn og var Hákon samferða.
Pardo kom síðan boltanum inn á teiginn þar sem Hákon var mættur og kláraði af yfirvegun. Langur sprettur hjá Hákoni sem hefur nú komið að átta deildarmörkum, sex mörk og tvær stoðsendingar.
Staðan er núna 2-1 þegar um það bil tuttugu mínútur eru eftir en markið má sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir




