Fotbolti.net
15.03.26 - 22:18
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Sociedad færist nær Evrópusæti - Orri spilaði tæpan hálftíma

Orri Steinn spilaði í sigri Sociedad

Orri Steinn spilaði í sigri Sociedad

Canon

Mynd: EPA

Real Sociedad, með Orra Stein Óskarsson innanborðs, vann Osasuna 3-1 í La Liga á Spáni í kvöld.
Landsliðsfyrirliðinn byrjaði á bekknum hjá Sociedad en kom inn á þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum.

Þá var staðan 3-0 fyrir Sociedad. Mikel Oyarzabal hafði komið heimamönnum yfir úr vítaspyrnu á 24. mínútu og þá skoraði Portúgalinn Goncalo Guedes tvö mörk sitt hvoru megin við hálfleikinn.

Victor Munoz minnkaði muninn fyirr Osasuna á 77. mínútu sem reyndist síðasta mark leiksins.

Sociedad er í 7. sæti deildarinnar með 38 stig, þremur stigum frá Celta Vigo sem er í Evrópusæti.

Celta tapaði einmitt stigum í dag er það gerði 1-1 jafntefli við Real Betis í Seville-borg.

Mark Ferran Jutgla dugði ekki Celta því spænski hægri bakvörðinn Hector Bellerin jafnaði metin fyrir Betis í upphafi síðari hálfleiks og sá til þess að halda Celta í þriggja stiga fjarlægð.

Betis er í 5. sæti með 44 stig en Celta í sætinu fyrir neðan með 41 stig.

Betis 1 - 1 Celta
0-1 Ferran Jutgla ('4 )
1-1 Hector Bellerin ('49 )

Real Sociedad 3 - 1 Osasuna
1-0 Mikel Oyarzabal ('24 , víti)
2-0 Goncalo Guedes ('28 )
3-0 Goncalo Guedes ('52 )
3-1 Victor Munoz ('77 )

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona9+3027
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid9+1421
4Betis9+219
5Real Sociedad9016
6Sevilla9-214
7Alaves10+312
8Villarreal10+112
9Celta9+311
10Deportivo10011
11Osasuna9-811
12Racing Santander10-1111
13Levante9-210
14Elche10-310
15Athletic8-19
16Getafe9-69
17Vallecano9-89
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.