Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
banner
   sun 15. mars 2026 21:56
Brynjar Ingi Erluson
Vonar að þetta verði vendipunkturinn - „Nýr stjóri færir þér von en leysir ekki vandamálið“
Igor Tudor eftir leikinn í kvöld
Igor Tudor eftir leikinn í kvöld
Mynd: EPA
Igor Tudor var ákaflega stoltur af lærisveinum sínum í Tottenham sem gerðu 1-1 jafntefli við Englandsmeistara Liverpool á Anfield í kvöld, en þetta var fyrsta stigið sem Tudor sækir síðan hann tók við Lundúnaliðinu.

Fjölmiðlar hafa rætt og ritað um stöðu Tudor síðustu daga og var talið að tap gegn Liverpool myndi verða honum að falli.

Hann sótti stig og mun því líklega halda stöðu sinni í að minnsta kosti nokkra daga í viðbót.

Tudor gerði nokkrar breytingar á kerfinu og virkaði það vel gegn Liverpool.

„Þetta er magnað og ótrúlegt að taka stig hér, en fyrst og fremst verðskuldað. Við sýndum mikinn liðsanda og vil ég óska strákunum til hamingju.“

„Það er mjög svo erfitt að lýsa þessum aðstæðum sem við erum í en við æfðum okkur bara með einum hætti. Í morgun sagði Conor okkur að hann gæti ekki spilað og þá þurftum við að breyta leikmönnum og stöðum. Þetta er mjög skrítin staða og enn erfiðara að sýna okkar rétta andlit. Leikmennirnir voru alveg stórkostlegir.“

„Við reyndum að gera eitthvað öðruvísi í sóknarleiknum. Á þessu augnabliki er erfitt að vinna undir vissum strúktúr í sókninni þannig við reynum að einfalda hlutina annars gæti þetta orðið svolítið erfitt fyrir okkur. Stíllinn er eins og hann er, en þetta er alla vega góð byrjun.“

„Liðsandinn var stórkostlegur. Það var svona aðalkrafan í þessu. Gæðin eru til staðar og hvert einasta stig er mikilvægt. Við munum taka einn leik í einu, en vonandi verður þetta vendipunkturinn,“
sagði Tudor.

Hann var spurður út í stjórastöðuna og framtíðina og hafði hann sterkar skoðanir á þessum spurningum blaðamanna.

„Þetta er eins hjá öllum félögum þegar úrslitin eru ekki að skila sér. Að breyta um þjálfara gefur von, en vandamálið verður enn til staðar. Þjálfarinn þarf að leysa vandamálið.“

„Blaðamenn elska að spyrja þessara spurninga, en það er alveg glórulaust. Okkur ber skylda að svara þessum spurningum, en annars værum við frekar til að vera heima hjá okkur. Þið haldið alltaf áfram að spyrja sömu spurninga,“
sagði Tudor.
Athugasemdir
banner
banner