Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. apríl 2021 12:30
Elvar Geir Magnússon
Arnar Gunnlaugs framlengir út tímabilið 2023 (Staðfest)
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Gunnlaugsson hefur skrifað undir nýjan samning við Víking en samningurinn gildir til þriggja ára, út tímabilið 2023.

„Samningurinn er óuppsegjanlegur af beggja hálfu, rétt eins og fyrri samningur var," segir í tilkynningu Víkinga.

Arnar tók við þjálfun meistaraflokks Víkings haustið 2018, eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari Loga Ólafssonar á yfirstöðnu tímabili.

„Allt frá fyrstu æfingu hefur Arnar lagt áherslu á að Víkingur spili jákvæðan fótbolta og innleitt nýjar áherslur í leik liðsins. Undir stjórn Arnars hefur liðið tekið miklum framförum og vakið verðskuldaða athygli. Ungir leikmenn hafa fengið stór hlutverk í liðinu og Arnar hefur fylgt sinni sannfæringu og stefnu frá upphafi, hvort sem er í velgengni eða þegar á móti hefur blásið. "

Á sínu fyrsta tímabili undir stjórn Arnars varð Víkingur bikarmeistari, en þá höfðu liðið 29 ár frá síðasta titli í knattspyrnu hjá félaginu.

„Undanfarin ár hefur aðstaða til æfinga batnað til muna í Víkinni og telur stjórn deildarinnar félagið vera á góðum stað hvað varðar leikmenn, þjálfarateymi og alla umgjörð um sína afreksmenn. Knattspyrnudeild Víkings er afar ánægð með framlengingu samnings Arnars og hlakkar til áframhaldandi uppbyggingar."

Arnar er fyrrum atvinnumaður og landsliðsmaður sem lék m.a. með Bolton Wanderers, Leicester City og Stoke City á Englandi en einnig í Hollandi, Þýskalandi, Frakklandi og á Skotlandi. Arnar varð deildarbikarmeistari á Englandi, hefur unnið Íslandsmeistaratitilinn þrisvar sinnum sem leikmaður og bikarmeistaratitilinn tvisvar sinnum sem leikmaður og einu sinni sem þjálfari.
Athugasemdir
banner
banner
banner