Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 15. september 2021 12:19
Elvar Geir Magnússon
„Með fleiri fætur en Man Utd hefur unnið af bikurum"
Mynd: EPA
„Hann labbar ekki svona lengur," skrifaði stuðningsmaður Manchester United við TikTok myndband af Harvey Elliott, átján ára leikmanni Liverpool sem meiddist illa á ökkla í leik gegn Leeds United um helgina.

Elliott svaraði ummælunum með skoti á United: „Magnað samt að ég er með fleiri fótleggi en United hefur unnið af bikurum á síðustu átta árum."

Stuðningsmenn United voru reyndar fljótir að benda á að United hefði í raun unnið fjóra bikara síðan 2013. Liðið vann síðast Evrópudeildarmeistaratitilinn 2017.

Elliott fór í vel heppnaða aðgerð í gær og er búist við því að hann snúi aftur út á völlinn á þessu tímabili.


Athugasemdir
banner
banner