Fotbolti.net
15.10.26 - 10:28
Elvar Geir Magnússon

Leikur færður vegna stúdentaóeirða í Tirana

Frá leik Albaníu og Íslands 2019.

Frá leik Albaníu og Íslands 2019.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Búið er að færa leik albanska liðsins Egnatia gegn Midtjylland frá Danmörku í Sambandsdeildinni um leikvang. Hann átti að fara fram á þjóðarleikvangi Albaníu í Tirana en hefur verið færður til Elbasan sem er í um 45 mínútna akstursfjarlægð.

Ástæðan eru ofbeldisfull mótmæli í miðborg Tirana. Tugir þúsunda námsmanna hafa safnast saman, kveikt var í opinberri byggingu og tveimur bönkum og grjóti kastað í lögregluna.

Mótmælin beinast gegn stjórnvöldum og eru vegna spillingar og hækkandi kostnaði við menntun. Tugir einstaklinga hafa slasast í óeirðunum.
Elías undir hnífinn og verður frá í nokkra mánuði
TENGT EFNI

Elías undir hnífinn og verður frá í nokkra mánuði

Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson spilar með Midtjylland en er á meiðslalistanum.

Leikur Egnatia og Midtjylland hefst klukkan 18:45.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.