14.10.26 - 21:52
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho: Roma var alveg búið á því

Mourinho var ósammála Gasperini

Mynd: EPA

Gian Piero Gasperini sagði að Real Madrid hafi verið búið á því

Mynd: EPA

Mourinho var ósammála Gasperini

Mynd: EPA
Jose Mourinho og lærisveinar hans hjá Real Madrid fögnuðu mögnuðum 4-3 endurkomusigri á Roma í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Meistararnir frábærir gegn Man City - Dramatísk endurkoma Madrídinga
Real Madrid var 3-1 undir þegar skammt var til leiksloka gegn Roma, en þá tóku varamennirnir til sinna ráða. Carlos Espi og Endrick skoruðu og jöfnuðu leikinn áður en Arda Güler, sem einnig kom af bekknum, tók hornspyrnuna sem Antonio Rüdiger skoraði sigurmarkið úr.
Gian Piero Gasperini, þjálfari Roma, var afar svekktur eftir leikinn og taldi sína menn hafa haft yfirburði á öllum sviðum. Að hans mati var Real Madrid orðið gersamlega búið á því og því enn sárara að hafa misst sigurinn úr höndunum.
„Ef eitthvað lið var búið á því þá var það Real Madrid. Við höfðum yfirburði á öllum sviðum og fyrir utan mörkin úr hornspyrnunum voru þeir ekki upp á sitt besta. Við verðum að klára svona leiki því lokamínúturnar skipta gríðarlega miklu máli. Þeir komu inn á með ferska leikmenn,“ sagði Gasperini.
Mourinho var hins vegar á allt öðru máli og taldi það einmitt hafa verið Roma sem var búið að keyra sig út þegar leið á leikinn.
„Roma var óstöðvandi í tuttugu mínútur og Soule á kantinum kom okkur verulega á óvart. Kannski héldu allir að leikurinn væri búinn í stöðunni 3-1, en það var Roma sem var búið á því. Það er mjög erfitt að halda uppi svona mikilli ákefð í 90 mínútur,“ sagði Mourinho.