Fotbolti.net
15.10.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Emery létt eftir fyrsta heimasigurinn - „Áttu kannski ekki skilið að fá á sig sex mörk“

Unai Emery

Unai Emery

Canon

Mynd: EPA

Unai Emery, stjóri Aston Villa, var ánægður með að fyrsti heimasigur tímabilsins væri loksins í höfn eftir að liðið valtaði yfir Fenerbahce, 6-0, í Meistaradeildinni í gær.
Gengi Aston Villa hefur verið nokkuð brösugt í upphafi tímabilsins en nú virðist liðið loksins vera að komast á skrið.

Villa lék sér að Fenerbahce í Meistaradeildinni og vann 6-0 stórsigur þar sem Nicolas Jackson og Ross Barkley skoruðu tvö mörk hvor, auk þess sem Johan Manzambi og Tammy Abraham komust á blað.

„Á heildina litið var þetta mjög góður leikur. Það er enn ýmislegt sem við getum bætt en úrslitin voru frábær. Kannski átti Fenerbahce ekki skilið að fá sex mörk á sig.“

„Við höldum áfram að bæta okkur og þessi sigur gerir sjálfstraustinu gott. Við gerðum líka breytingar til að gefa fleiri leikmönnum tækifæri og hjálpa þeim að byggja upp sjálfstraustið. Frammistaðan var frábær en við vitum hversu erfið Meistaradeildin er,“
sagði Emery.

Hann var sérstaklega ánægður með Jackson sem er farinn að finna sitt gamla form og virðist ætla að gegna stóru hlutverki hjá Villa í vetur.

„Hann hefur hraðann og kraftinn til að hlaupa fyrir aftan vörnina en er líka tilbúinn að koma til baka og hjálpa til varnar. Þegar við sækjum viljum við hins vegar hafa hann inni í teignum. Brian Madjo er líka tilbúinn að spila en Jackson er okkar fremsti kostur í sókninni.“

Johan Manzambi átti sömuleiðis frábært kvöld en hann fagnaði 21 árs afmæli sínu með því að skora mark og fiska vítaspyrnuna sem Barkley nýtti. Svisslendingurinn hefur farið vel af stað hjá Villa síðan hann kom frá Freiburg í sumar og Emery hafði ekkert nema gott um hann að segja.

„Hann hefur verið mjög góður. Hann er ótrúlega viðkunnanlegur, algjör fagmaður og frábær liðsfélagi. Hann hefur líka fallið mjög vel inn í hópinn,“ sagði Emery.
Manzambi hefur farið vel af stað með Villa

Manzambi hefur farið vel af stað með Villa

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.