Fotbolti.net
15.10.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

„Maresca getur ekki spilað með þessa þriggja manna miðju“

„Maresca getur ekki spilað með þessa þriggja manna miðju“
Canon

Mynd: EPA

Jamie Carragher, spekingur á Meistaradeildarkvöldi CBS, sagði Enzo Maresca hafa lært margt af 4-2 tapinu gegn Paris Saint-Germain í gær.
Meistaradeildin: Meistararnir frábærir gegn Man City - Dramatísk endurkoma Madrídinga
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Meistararnir frábærir gegn Man City - Dramatísk endurkoma Madrídinga

Man City átti í miklum vandræðum í fyrri hálfleiknum gegn PSG og það sást vel á stöðutöflunni, en Evrópumeistararnir leiddu 3-0 þegar flautað var til hálfleiks.

Það var hins vegar allt annað að sjá City í síðari hálfleiknum eftir að Ayyoub Bouaddi kom inn á og færði liðinu mun meira jafnvægi á miðjunni.

Jamie Carragher telur að Enzo Maresca hafi lært mikilvæga lexíu af þessum leik og áttað sig á því að hann geti ekki teflt þeim Enzo Fernandez, Elliot Anderson og Rayan Cherki fram saman á miðjunni gegn allra sterkustu liðunum.

„Ég held að Maresca hafi lært heilmikið af þessum leik. Hann var að mæta besta liði heims og nú veit hann að hann getur ekki spilað með þessa þriggja manna miðju í svona stórum leik.“

„Þeir voru einfaldlega ekki nógu góðir án boltans. Cherki, Fernandez og Anderson, með Cherki í tíunni. Hann er leikmaður sem fer sínar eigin leiðir og það getur verið erfitt að finna honum pláss í svona leikjum. Seinni hálfleikurinn var allt önnur saga eftir að Bouaddi kom inn á og þetta er eitthvað sem Maresca mun læra af.“

„Þetta var frábær leikur að horfa á, tvö geggjuð lið að mætast, en svona lagað getur kostað þig í átta liða úrslitum eða undanúrslitum. Það er það sem City tekur með sér úr þessum leik og næst þegar Maresca mætir svona sterku liði mun hann sýna því meiri virðingu með því hvernig hann stillir upp miðjunni,“
sagði Carragher á CBS.
„Maresca getur ekki spilað með þessa þriggja manna miðju“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.