Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 16. júní 2021 07:00
Victor Pálsson
Rooney vill sjá Grealish byrja
Mynd: EPA
Wayne Rooney, goðsögn Englands, vill sjá Jack Grealish byrja leiki Englands á EM í sumar.

Grealish er leikmaður Aston Villa en hann byrjaði fyrsta leik Englands gegn Króatíu á bekknum.

Rooney er markahæsti leikmaður í sögu Englands en hann er mikill aðdáandi Grealish sem kom ekki við sögu í 1-0 sigri enska liðsins.

„Ég hefði elskað að sjá Grealish. Hann er leikmaður sem mun þroskast á þessu móti og verður afar mikilvægur fyrir England," sagði Rooney.

„Ég get séð nokkrar breytingar fyrir leikinn gegn Skotlandi. Ég held að hann fái að byrja."

„Þetta verður aðeins afslappaðra á föstudag, ef þeir hefðu ekki unnið þá hefði fylgt þessu meira stress."
Athugasemdir
banner
banner
banner