Titilvörn Englandsmeistara Manchester City byrjar gegn West Ham á útivelli í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á komandi tímabili. Bikarmeistarar Liverpool eiga útileik gegn Fulham.
Tímabilið 2022-23 verður einstakt að því leyti að það verður vetrarhlé vegna HM í Katar. Eftir helgina 12.-13. nóvember verður ekki spilað í deildinni þar til 26. desember vegna HM.
Tímabilið 2022-23 verður einstakt að því leyti að það verður vetrarhlé vegna HM í Katar. Eftir helgina 12.-13. nóvember verður ekki spilað í deildinni þar til 26. desember vegna HM.
HM hefst í Katar 21. nóvember og úrslitaleikurinn verður 18. desember, átta dögum áður en enska deildin hefst að nýju.
Það er enginn stórleikur í deildinni síðustu umferðina fyrir HM, að beiðni enska fótboltasambandsins.
Liverpool mun taka á móti Manchester City þann 15. október og liðin leika svo aftur á Etihad leikvangnum 1. apríl.
Fyrsta umferðin:
5. ágúst
Crystal Palace - Arsenal
6. ágúst:
Bournemouth - Aston Villa
Everton - Chelsea
Fulham - Liverpool
Leeds United - Wolverhampton
Leicester City - Brentford
Newcastle United - Nottingham Forest
Tottenham Hotspur - Southampton
7. ágúst:
Manchester United - Brighton
West Ham United - Manchester City
Smelltu hér til að sjá leikjadagskrána í heild
Athugasemdir